Gámurinn er vonandi að leggja af stað frá Kína með öllum borðbúnaðinum en það eitt og sér var ævintýri í lagi en að sama skapi gríðarlega hagkvæmt. Verið er að vinna á milljón þessa dagana: smiðirnir byggja, rafvirkjarnir tengja, verið að hanna matseðla og bóka brúðkaup og veislur fyrir næsta ár. Ljóst er að þörfin fyrir up scale stað á eyjunni er mikil og markaðurinn hérna er gríðarlega spennandi. Bæði erum við á besta stað þegar kemur að brúðkaupum og öðru slíku en hingað til eyjunnar flykkist fólk í þeim erindagjörðum. Það segir sig sjálft að fólk vill helst gifta sig á ströndinni og seinna meir erum við jafnvel að spá í að byggja lítið cazebo úti á sjó sem hægt er að nota sem hálfgert altari... Svo má ekk gleyma öllum skemmtiferðaskipunum.
Staðurinn verður gríðarlega fjölbreyttur og skemmtilegur. Bæði eru um heimsklassa veitingahús að ræða innandyra og síðan ögn hversdagslegri útistað en veitingarýmin eru tvö. Svo verður jafnframt strandklúbbur á ströndinni fyrir framan dags daglega.
En hér koma nokkrar myndir... vonum að þið njótið vel!
Búið er að hreinsa lóðina að framan og byrjað að planta trjám. Grasifræjum verður sáð á flötina og að sjálfsögðu verða litskrúðug og falleg blóm og allt það helsta sem paradís hefur uppá að bjóða...

Og annað sjónarhorn á lóðina fyrir framan. Verið að planta.....

Smá sýnishorn af því hvernig staðurinn leit út þegar við tókum við honum. Eins og sjá má var lagt mikið upp úr dekkói og almennum smartheitum. Þið getið rétt ímyndað ykkur umbreitinguna þegar þarna verður opnaður hvítmálaður, stílhreinn, elegant háklassa veitingastaður sem á eftir að auka enn á vegsemt Grand Bahama...

Huggulegt... þetta segir sig sjálft...

Hálfnað verk þá hafið er.... Þetta þokast markvisst í rétta átt...

Hér er búið að steypa fasta staura og annað fínerí þar sem stóri ljóti barinn var. Við þessa breytingu er búið að opna staðinn gríðarlega og gera hann þannig að heppilegri vettvangi fyrir stórar veislur og brúðkaup - en brúðkaupin eru einn stærsti bisnessinn á eyjunni og er Ociano eini staðurinn sem býður upp á slíkt og er staðsettur á ströndinni!!!

Hinn salurinn en þar er búið að gera það sama og á myndinni hér að ofan.

Hér er síðan búið að brjóta upp fyrir nýjum lögnum í eldhúsið.

Hérna er síðan búið að steypa aftur í eldhúsgólfið og allt tilbúið fyrir flísalögn og uppsetningu tækja!!!

Hér gefur að líta geymslu áður en hún var þrifin. Gott geymslurými er í húsnæðinu sem gefur möguleika á stórum lager sem mun auka hagkvæmni rekstrareininganna beggja mikið.

Meira fyrir og eftir. Hér gefur að líta aðra geymslu eins og hún leit út þegar við tókum við...

Og svona er hún í dag... mun snyrtilegri og fínni...

Næturvörðurinn okkar og grimmi hundurinn hans.