Friday, March 30, 2007

Welcome to SABOR

Hér eru nokkrar myndir til að sýna ykkur stemninguna og útlitið á SABOR. Myndirnar eru teknar annað kvöldið sem var opið og ekki hægt að segja annað en að gengið hafi vel. Vonandi komið þið öll í heimsókn sem fyrst....















Monday, March 12, 2007

Myndir

Eins og sjá má að meðfylgjandi myndum mjatlast þetta áfram... og er orðið sólahringaspursmál hvenær SABOR opnar... en hér eru semsagt nokkrar myndir...

Séð inn í eldhúsið...



Barhillurnar komnar á sinn stað



Hinn helmingur eldhússins... eldavélin komin inn en þó ekki komin í samband



Drukkið úr kókoshnetu i sólsetrinu...



Auglýsing fyrir Heineken



Barinn eins og hann lítur út þegar shutterinn er kominn fyrir...

Sunday, March 4, 2007

Síðustu metrarnir

Jæja.... fer að styttast í formlega opnun á SABOR. Verið er að taka uppúr gámum, klára húsnæðið, matseðla og allan almennan undirbúning. Í mörg horn er að líta og endalausar pælingar á lokasprettinum. Hér koma nokkrar myndir....

Hér gefur að líta þakið á eldhúsinu, þ.e. stækkunninni. Það er í dag tilbúið!


Verið að leggja lokahönd á flísalagningu í eldhúsinu.. tækin verða sett inn á næstu dögum.


Mr. Walkins, glæsilegur að vanda....


Hér sést yfir hluta veitingarýmisins og barsins. Allt fullt af kössum og stólum (barstólum).


Barstólarnir.. búið að vinna þá þannig að þessi áferð fáist.


Vulkan salamander... fyrir þá sem ekki skilja þá er þetta state of the art grillofn....


Innra skipulag barsins komið og kokkurinn gæti ekki verið sáttari. Sagði meira að segja orðrétt ,,Þetta verður svo auðvelt að vinna hérna að það er ótrúlegt."


Útsýnið ekki af verri endanum. Þetta er án efa stærsta snekkjan sem ég hef séð hérna... með þyrlu og allar græjur.