Wednesday, March 12, 2008

Lokaspretturinn...


Nú styttist í formlega opnun Oceano og verður engu til sparað til að opnunin heppnist sem best. Verið er að sérsmíða ljósin í turnanna, bíða eftir BOSE hljóðkerfinu sem er sérhannað í húsið, og annað smálegt. Þakviðgerðirnar ganga eins og í sögu og því verður hægt að smella eldhúsinu saman um leið og þeim lýkur.


Eins og sjá má á myndunum er þetta draumi líkast. 300 manna veitingastaður á ströndinni, getur tekið 80 mannst í sæti innandyra en bætt við sig 70 sætum til viðbótar eftir þörfum. Aðal rýmið innandyra er lounge-ið sem er með útsýni yfir ströndina og 3-15 metra lofthæð. Í turnunum sjálfum verða sérsmíðaðar ljósakrónur sem munu setja punktinn yfir i-ið. Úti er síðan stór pallur sem tekur 100 manns í sæti. Á ströndinni sjálfri verður síðan strandklúbbur að South Beach hætti þar sem ferðamenn geta dvalið allan liðlangan daginn og notið lífsins.


Matseðillinn verður sá glæsilegast á eyjunni og nú þegar er farið að bóka brúðkaup og aðrar stórveislur fyrir árið 2009.


Eins og sjá má eru strendurnar á Grand Bahama ekki af verri endanum og er þar engu logið. Daglega verður ströndin rökuð fyrir gesti Oceano.


Byrjað er að smíða barinn í lounginu sem verður mjög svipaður þessu - þ.e. úr hvítu baklýstu plexigleri. Á bak við barinn má sjá beint inn í eldhús.


Hönnunarlega séð verður byggt á einföldum grunni. Gengið er út frá evrópskum straumum og stefnum og arkítektúr byggingarinnar fær sýn notið í bland við rétta lýsingu.


Ógleymanleg lounge stemning - með útsýni yfir Karíbahafið


Þakið hans Artúrs að verða tilbúið - þetta er ótrúlegt þak og setur mikinn svip á staðinn. Það er svo þétt ofið að það þolir öll veður og er 100% vatnshelt.


Panton stólarnir verða út á palli...

Wednesday, March 5, 2008

Talið niður...

Framkvæmdir ganga vel og við nálgumst óðfluga væntanlega opnunardag. Eina vandamálið þessa dagana er tryggingarfélagið og tryggingarmál almennt útaf brunanum. Eins og svo margt annað á okkar yndislegu eyju þá ganga hlutirnir oft hægt fyrir sig þegar maður fær ekki sjálfur að djöflast í þeim. Því eru viðgerðir á þakinu ekki enn hafnar og því ekki hægt að ganga frá eldhúsinu fyrr en búið er að því.
Annað er á áætlun eins og myndirnar hér að neðan bera með sér. Búið er að flota gólfin í mið- og austurturninum og sparslvinnu er að mestu lokið þannig að lítið annað eftir að gera en að mála.
Þetta lítur hrikalega vel út og eins og þið sjáið þá minnir staðurinn orðið eigininlega meira á hátækni geimskip enda einstaklega furðulegur í laginu - en að sama skapi ógnarfagur!
Hér er mynd af nýflotuðu gólfinu í austurturninum og allir kassarnir frá Kína... glöggir geta séð glitta í stól efst upp á fjallinu!


Miðsalurinn: flotaður og fínn


Meiri miðsalur...


Og aðeins meira...


Gluggakarmarnir komnir í vínhvelfinguna...


Og aðeins meira af brunaskemmdunum sem við bíðum eftir að verði lagaðar... í raun segja myndirnar allt sem segja þarf en eins og sjá má þarf að skipta þessu öllu út þannig að við bara bíðum.. og bíðum...

Friday, February 22, 2008

Kínagámarnir komnir

Í dag gekk mikið á. Gámarnir frá Kína komu loksins og hafist var handa við að tæma þá. Á sama tíma kom loftræstikerfið og var það hýft á réttan stað. Reyndar er það í mörgum bútum og verður aflið gríðarlegt. Það verður því hægt að loftkæla staðinn á nokkrum mínútum sem mun sjálfsagt ekkert veita af hérna í paradís.
Allt gekk að óskum og ég held að ég leyfi bara myndunum að tala sínu máli....

Verið að klára sparslvinnu í vínhvelfingunni.

Suðursalurinn eða lounge-ið bíður núna einungis eftir því að vera málað og því næst verður gólfið flotað og lakkað.

Austursalurinn, tæmdur, þrifinn og tilbúinn fyrir alla kassana.

Séð út um gluggann á austursalnum... þarna má sjá affermingu í fullum gangi.

Verið að tæma gám númer tvö.

Gámarnir tæmdir á fullu með hjálp Haítí-hersins

Völli slær hvergi slöku við.

Brot af kössunum góðu.

Nóg að gerast - verið að tæma gámana og hýfa loftræstinguna á sama tíma.

Verið að hýfa loftræstibúnaðinn upp á þak.

...og koma honum fyrir.

Eins og sjá má er garðurinn orðinn gróinn og fallegur.

Völundur fylgist ábúðarfullur með.

Arthúr kallinn fléttar þakið eins og hann eigi lífið að leysa.

Borðfæturnir fyrir útiborðin. Fyrst verða þeir þó lakkaðir hvítir.

Wednesday, February 20, 2008

Jæja gott fólk...

Það styttist óðum í opnunina og verður að segjast eins og er að það er fiðringur í mönnum (og konum). Flestir gámarnir eru komnir á eyjuna, búið er að mála turnana að innan, gifs vinnu er að ljúka og flísalögn í aðalsal er lokið. Nú á bara eftir að flota, setja upp barinn, klára að mála og sparsla og raða inn húsgögnum - eða því sem næst.

Í heildina verður ekki annað sagt en að framkvæmdir hafi gengið frábærlega. Að sjálfsögðu eru alltaf einhverjar hindranir í veginum og okkar stærsta var sjálfsagt bruninn sem átti sér stað aðfaranótt 28. janúar.
Klukkan tvö um nóttina fengum við símtal frá öryggisþjónustunni um að kerfið hefði farið í gang. Völli stekkur af stað og tekur Halla með sér ásamt hundinum Reggie. Þegar niðureftir var komið blasti við eldur og logaði vel í einum turni af þremur.
Til að gera langa sögu stutta þá fór miklu betur en á horfðist þessa nótt og mikið mildi að ekki fór verr. Tókst Völla og Halla að ná stjórn á eldinum enda fyrirtaks vatnsslanga við húsið og þegar slökkviliðið mætti á svæðið var mesti eldurinn slokknaður.
Það mátti ekki miklu muna en það vann allt með okkur þessa nótt: vindáttin, staðsetning eldsins og snögg viðbrögð strákanna og slökkviliðsins.

Í ljós hefur komið að það kviknaði í út frá rafmagni. Höfðum við beðið lengi eftir að rafmagnsveitan mætti á svæðið til að laga inntakið í húsið sem var bráðabirgða. Það dróst hins vegar svo lengi að á endanun kviknaði í. En - við erum tryggð, verið er að fá tilboð í viðgerðina og þrátt fyrir að þetta hafi tafið okkur þó nokkuð þá hefði þetta getað verið mun verra.


Hér gefur að líta svæðið sem varð hvað verst úti í brunanum. Um er að ræða útiskemmu og svo hluta þaksins yfir eldhúsinu. Mestar eru skemmdirnar þó fyrir ofan milliloftið þannig að hægt verður að ganga frá eldhúsinu eins og ekkert hafi í skorist.


Og meira af skemmdum...

Arthúr er að vinna við þakið á útiveitingarýminu og það er engin smá vinna sem liggur þar að baki enda stærðarinnar þak og hvert einasta pálmalauf bundið niður í höndunum.

Það er því góður andinn hérna og lítið sofið milli þess sem unnið er hörðum höndum á öllum vígstöðvum.

Byrjað er að bóka brúðkaup og veislur allt fram til 2009 og því ljóst að þetta verður staður staðanna!!!


Turninn orðinn hvítur að innan og þá fyrst gerir maður sér grein fyrir lofthæðinni og hvað húsnæðið er glæsilegt!!!


Allt að verða tilbúið fyrir málningu...


Völli og Halli fóru út í skóg og náðu sér í trjádrumba sem þeir söguðu niður út í skógi. Þeir verða málaðir hvítir og notaðir sem borðfætur á útiborðunum. Fyrir þá sem halda að við séum endanlega gengin af göflunum þá vísa ég hérmeð í öll heitustu hönnunartímaritin og bendi á að þetta þykir það alflottasta. Ekki spilla Panton stólarnir heldur fyrir þannig að niðurstaðan verða stórkostleg smartheit!

Wednesday, January 2, 2008

Byrjað að telja niður í formlega opnun Oceano!

Framkvæmdir hafa gengið gríðarlega vel undanfarið - ekki síst þar sem undrasmiðurinn Daði mætti á svæðið um miðjan desember með hamar í annarri og sög í hinni. Síðan þá hafa framkvæmdir gengið á undraverðum hraða og ekkert hefur verið slegið af um jólin. Búið er að reisa þakið yfir útiveitingasvæðið þar sem innfæddir handverksmenn eru í óðaönn að vefa þak úr pálmalaufum. Ástæðan fyrir þessu efnisvali er einföld: Það gerist hvorki flottara né vatnsheldara!
Innandyra er loksins búið að steypa niður burðarbita fyrir milliloftið í eldhúsrýminu. Verður heilli hæð bætt þar við og mun það auka hagkvæmni til muna. Þar sem því er lokið verður hægt að byrja á loftinu sjálfu á næstu dögum og um leið og búið er að loka því hefst formlegur lokahnikkurinn í eldhúsinu. Þá verður allt flísalagt hólf í gólf (gifsað fyrst) og síðan er bara að koma öllum tækjum og tólum fyrir og svo brýna hnífana.
Í veitingarýminu sjálfu er einnig allt að gerast. Byrjað er að klæða staðinn að innan þannig að hægt sé að gifsa. Eins og glöggir hafa tekið eftir er byggingin einkar óvenjulegt og því er um gríðarlega smíðavinnu að ræða og mikið föndur. En árangurinn á ekki eftir að láta á sér standa og nú þegar sýpur fólk hveljur af hrifningu þegar það kemur inn. Hins vegar hafa þessar hveljur ekki enn náðst á mynd þar sem nægilega stór víðlinsa og tilhlíðleg birta hafa látið á sér standa.
Innanhúsarkítektinn er mætt á svæðið - en það er engin önnur en Jóhanna Kristín Ólafsdóttir. Ekki skortir afrekaskránna hjá henni en meðal helstu skrautfjaðra eru skrifstofur Novator í London og Reykjavík, svo að ótalin sé sá fjöldi einkaheimila og annarra fyrirtækja sem hún er með á sínum snærum. Sannarlega snillingur þar á ferð sem iðaði af spennu þegar hún sá möguleikana í byggingunni. Hún tók svo sterkt í árina að lýsa því yfir að þessi bygging væri algjört meistarastykki og útkoman yrði stórkostleg!!! 
Gámurinn í Kína er að leggja af stað og er yfirfullur af stólum, borðum, hnífapörum og ýmsu öðru sem á eftir að skapa ógleymanlega heildarmynd. Eyjaskeggjar bíða óþreyjufullir eftir opnuninni og ljóst að eyjan hefur lengi beðið eftir sambærilegum stað. Af Sabor (hinum veitingastaðnum) er það að frétta að nýárspartíið heppnaðist eins og best verður á kosið. Var fullt útúr dyrum og engu til sparað til að gera kvöldið ógleymanlegt fyrir gestina. 

Hér fylgja nokkrar myndir með... og gleðilegt nýtt ár.


Ströndin séð frá Oceano


Búið að stækka pallinn


Og verið að reisa grindina í kringum hann sem þakið mun hvíla á


Hér er þakið komið og sérfræðingarnir byrjaðir að vefa þakið úr sérvöldum pálmalaufum. Einnig er búið að planta nokkrum pálmatrjám.


Hérna sést hvurslags handverk um ræðir... það er ekkert lítið verk að vefa hvert laufblað á.


Og ekki má heldur gleyma þaksperrunum sem reystar voru á íslensku hugviti einu saman. Skemmtilegt að segja frá því að tilboð hafði borist í verkið sem hljómaði upp á tvær vikur og sjö manns í vinnu. Það tók Daða og Halla - tvo saman - fjóra daga að reysa það.


Þetta verður fallegt...


Hér má sjá hvernig byrjað er að klæða þakið að innan...


Og einnig hér


Íslensku smiðirnir Daði og Halli


Ströndin


Burðarbitarnir klárir fyrir milliloftið í eldhúsinu