Við biðjumst formlega afsökunar á skriftarleti undanfarinna vikna en það hefur verið meira en nóg fyrir stafni. Þann 2. janúar hófust formlegar framkvæmdir við Yellow Tail sem eftirleiðis mun heita Sabor. Framkvæmdir ganga vel og er áætlað að þeim ljúki á næstu tveimur vikum og þá er stutt í formlega opnun. Matseðillinn er tilbúinn, mannaráðningum nánast lokið og því virkilega hægt að segja að við séum á lokasprettinum. Reyndar tók staðurinn nokkrum breytingum frá því sem fyrst hafði verið áformað en í upphafi átti einungis að bjóða uppá mat í léttari og einfaldari kantinum ásamt veglegum drykkjarseðli (staðurinn þjónar einnig sem sundlaugabar á daginn). Nú hins vegar er svo komið að á kvöldin verður Sabor að ,,finni" veitingastað. Sú stækkun helgast af því að við getum nú tvöfaldað stærð eldhússins og því vinnslugetuna og því eru forsendur þar allt aðrar. Staðurinn er, eins og sést á myndunum hér að neðan, staðsettur í garði Pelican Bay hótelsins með útsýni yfir snekkjuhöfnina. Garðurinn verður allur upplýstur og gerður sem glæsilegastur með pálmatrjám, blómum, luktum og rómantík. Hér eru síðan nokkrar myndir af framkvæmdunum:
Yellow Tail þegar framkvæmdir voru rétt að hefjast. Bakveggurinn var tekinn úr eldhúsinu til að stækka það og byggt verður þak yfir stóran hluta veitingarýmisins.
Yellow Tail þegar framkvæmdir voru rétt að hefjast. Bakveggurinn var tekinn úr eldhúsinu til að stækka það og byggt verður þak yfir stóran hluta veitingarýmisins.
Byrjað að grafa fyrir steypustyrktarjárninu og því öllu.
Hér má sjá hvar þakið verður...
Og hér líka...
Bakveggurin í eldhúsinu farinn... (skipt verður um allt í eldhúsinu)
Búið að steypa.... farið að taka á sig mynd.
Verið að setja þakið á... Völli fylgist ábúðarfullur með.
Hér má sjá útsýnið og nánari staðsetninu SABOR... alveg fyrirtaks staðsetning beint við höfnina og alveg í hrigiðunni....
Og útsýni yfir útsýnið....
3 comments:
Komið þið blessuð og sæl. Það er
gaman að sja myndirnar og fylgjast með framkvæmdum. Gangi ykkur allt i haginn, Hilda
Það kom skemmtilega að óvart að sjá hvar þessi nýji veitingarstaður ykkar verður og það rifjaðist margt skemmtilegt upp - það vantaði bara á myndirnar Völla Snæ við hlið barsins á gula tryllitækinu tilbúinn í siglingu með okkur.
Bestu kveðjur í blíðuna
Ella Dögg og Steini
Tek undir með Ellu og Jóni Hauki, það rifjast upp ansi ljúfar minningar, svei mér þá ef útsýnismyndin er ekki tekin úr hótelherberginu okkar:)
Gangi ykkur vel. Kv. Helga
Post a Comment