Hér gefur að líta þakið á eldhúsinu, þ.e. stækkunninni. Það er í dag tilbúið!
Verið að leggja lokahönd á flísalagningu í eldhúsinu.. tækin verða sett inn á næstu dögum.
Mr. Walkins, glæsilegur að vanda....
Hér sést yfir hluta veitingarýmisins og barsins. Allt fullt af kössum og stólum (barstólum).
Barstólarnir.. búið að vinna þá þannig að þessi áferð fáist.
Vulkan salamander... fyrir þá sem ekki skilja þá er þetta state of the art grillofn....
Innra skipulag barsins komið og kokkurinn gæti ekki verið sáttari. Sagði meira að segja orðrétt ,,Þetta verður svo auðvelt að vinna hérna að það er ótrúlegt."
Útsýnið ekki af verri endanum. Þetta er án efa stærsta snekkjan sem ég hef séð hérna... með þyrlu og allar græjur.
1 comment:
þetta lítur rosalega vel út! Gangi ykkur vel og ég hlakka svo til að sjá ykkur eftir páska.
mbk
ÁRni P og co
Post a Comment