Wednesday, November 7, 2007

Oceano að fæðast...

Uppbygging Oceano gengur vonum framar og öllu niðurrifi er formlega lokið. Búið er að mölva steypu sökkla, brjóta fyrir frárennslis og pípulögnum og græja grunninn eins og best verður á kosið. Þrátt fyrir að staðurinn hafi ekki verið mikið fyrir augað þegar við fengum lyklana þá er ótrúlegt hvað hann er vel farinn og ekki síst grindin. Það er því ekki að undra að þessi staður hafi staðið af sér öll þau veður sem herjað hafa á eyjuna...

Gámurinn er vonandi að leggja af stað frá Kína með öllum borðbúnaðinum en það eitt og sér var ævintýri í lagi en að sama skapi gríðarlega hagkvæmt. Verið er að vinna á milljón þessa dagana: smiðirnir byggja, rafvirkjarnir tengja, verið að hanna matseðla og bóka brúðkaup og veislur fyrir næsta ár. Ljóst er að þörfin fyrir up scale stað á eyjunni er mikil og markaðurinn hérna er gríðarlega spennandi. Bæði erum við á besta stað þegar kemur að brúðkaupum og öðru slíku en hingað til eyjunnar flykkist fólk í þeim erindagjörðum. Það segir sig sjálft að fólk vill helst gifta sig á ströndinni og seinna meir erum við jafnvel að spá í að byggja lítið cazebo úti á sjó sem hægt er að nota sem hálfgert altari... Svo má ekk gleyma öllum skemmtiferðaskipunum.

Staðurinn verður gríðarlega fjölbreyttur og skemmtilegur. Bæði eru um heimsklassa veitingahús að ræða innandyra og síðan ögn hversdagslegri útistað en veitingarýmin eru tvö. Svo verður jafnframt strandklúbbur á ströndinni fyrir framan dags daglega.

En hér koma nokkrar myndir... vonum að þið njótið vel!

Búið er að hreinsa lóðina að framan og byrjað að planta trjám. Grasifræjum verður sáð á flötina og að sjálfsögðu verða litskrúðug og falleg blóm og allt það helsta sem paradís hefur uppá að bjóða...



Og annað sjónarhorn á lóðina fyrir framan. Verið að planta.....



Smá sýnishorn af því hvernig staðurinn leit út þegar við tókum við honum. Eins og sjá má var lagt mikið upp úr dekkói og almennum smartheitum. Þið getið rétt ímyndað ykkur umbreitinguna þegar þarna verður opnaður hvítmálaður, stílhreinn, elegant háklassa veitingastaður sem á eftir að auka enn á vegsemt Grand Bahama...



Huggulegt... þetta segir sig sjálft...



Hálfnað verk þá hafið er.... Þetta þokast markvisst í rétta átt...



Hér er búið að steypa fasta staura og annað fínerí þar sem stóri ljóti barinn var. Við þessa breytingu er búið að opna staðinn gríðarlega og gera hann þannig að heppilegri vettvangi fyrir stórar veislur og brúðkaup - en brúðkaupin eru einn stærsti bisnessinn á eyjunni og er Ociano eini staðurinn sem býður upp á slíkt og er staðsettur á ströndinni!!!



Hinn salurinn en þar er búið að gera það sama og á myndinni hér að ofan.



Hér er síðan búið að brjóta upp fyrir nýjum lögnum í eldhúsið.



Hérna er síðan búið að steypa aftur í eldhúsgólfið og allt tilbúið fyrir flísalögn og uppsetningu tækja!!!



Hér gefur að líta geymslu áður en hún var þrifin. Gott geymslurými er í húsnæðinu sem gefur möguleika á stórum lager sem mun auka hagkvæmni rekstrareininganna beggja mikið.



Meira fyrir og eftir. Hér gefur að líta aðra geymslu eins og hún leit út þegar við tókum við...



Og svona er hún í dag... mun snyrtilegri og fínni...



Næturvörðurinn okkar og grimmi hundurinn hans.

6 comments:

Ígló kids said...

Þetta er ekkert smá flott....Vonandi getum við heimsótt ykkur sem fyrst.

Heyrumst

Jón Haukur og co.

hilmartor said...

Hér er greinilega allt að gerast! Mér sýnist þetta eiga eftir að verða ansi flott....aldrei að vita nema maður bóki hjá ykkur brúðkaup einhvern daginn:) þ.e.a.s. ef Árni Pétur hundskast á skeljarnar, ég er löngu búin að kaupa handa honum hnéhlífar og bíð bara og bíð....
kv. Helga

Unknown said...

Þetta er að verða helvíti glæsilegt hjá ykkur. Svo er bara að fara að taka eitthvað upp svo að ég hafi afsökun fyrir að fara til Bahamas ;)

Unknown said...

Nunni

Kristín E. said...

Hvernig gengur á Oceano þessa dagana???

d-unit said...

ahhh Einlægur aðdáandi loksins loksins er ég með meira info um þig ;) pabbi er kokkur og ég pæli mjög mikið í mat og veit fátt skemmtilegra en að fara út að borða með góðum vinum sjúklegar staðsetningar hjá ykkur mmm vá hvað ég væri til í að koma og borða hjá ykkur

- innilegar hamingjuóskir með staðina 2 mæli með lógói númer 2 frekar en 1 - snyrtilegra - hreinlegra-meira elegant það er eitthvað við það sem talar til manns meira en númer 1 annars prýðislógó báðar tillögur ég segi það ekki..

en takk fyrir kommentin og stuðkommentin ávallt darling ;)

þín dd-unit ;)

ps. my lips are sealed hver Einlægur er ;)