Allt gekk að óskum og ég held að ég leyfi bara myndunum að tala sínu máli....
Suðursalurinn eða lounge-ið bíður núna einungis eftir því að vera málað og því næst verður gólfið flotað og lakkað.
Austursalurinn, tæmdur, þrifinn og tilbúinn fyrir alla kassana.
Séð út um gluggann á austursalnum... þarna má sjá affermingu í fullum gangi.
Verið að tæma gám númer tvö.
Gámarnir tæmdir á fullu með hjálp Haítí-hersins
Völli slær hvergi slöku við.
Brot af kössunum góðu.
Nóg að gerast - verið að tæma gámana og hýfa loftræstinguna á sama tíma.
Verið að hýfa loftræstibúnaðinn upp á þak.
...og koma honum fyrir.
Eins og sjá má er garðurinn orðinn gróinn og fallegur.
Völundur fylgist ábúðarfullur með.
Arthúr kallinn fléttar þakið eins og hann eigi lífið að leysa.
Borðfæturnir fyrir útiborðin. Fyrst verða þeir þó lakkaðir hvítir.
3 comments:
Hæ,
Snilld, greinilega allt að koma. Kíki reglulega hér til að tékka á nýjum myndum og sögum. Helvíti tekur kallinn sig vel út.
kv. Siggi
hmmmm Siggi kommentaði óvart á mínu nafni :þ
Nú er ég búin að lesa líka... og langar bara í heimsókn fljótlega :o) þetta verður greinilega geðveikur veitingastaður :þ ekki spillir staðsetningin fyrir.....
Post a Comment