Í heildina verður ekki annað sagt en að framkvæmdir hafi gengið frábærlega. Að sjálfsögðu eru alltaf einhverjar hindranir í veginum og okkar stærsta var sjálfsagt bruninn sem átti sér stað aðfaranótt 28. janúar.
Klukkan tvö um nóttina fengum við símtal frá öryggisþjónustunni um að kerfið hefði farið í gang. Völli stekkur af stað og tekur Halla með sér ásamt hundinum Reggie. Þegar niðureftir var komið blasti við eldur og logaði vel í einum turni af þremur.
Til að gera langa sögu stutta þá fór miklu betur en á horfðist þessa nótt og mikið mildi að ekki fór verr. Tókst Völla og Halla að ná stjórn á eldinum enda fyrirtaks vatnsslanga við húsið og þegar slökkviliðið mætti á svæðið var mesti eldurinn slokknaður.
Það mátti ekki miklu muna en það vann allt með okkur þessa nótt: vindáttin, staðsetning eldsins og snögg viðbrögð strákanna og slökkviliðsins.
Í ljós hefur komið að það kviknaði í út frá rafmagni. Höfðum við beðið lengi eftir að rafmagnsveitan mætti á svæðið til að laga inntakið í húsið sem var bráðabirgða. Það dróst hins vegar svo lengi að á endanun kviknaði í. En - við erum tryggð, verið er að fá tilboð í viðgerðina og þrátt fyrir að þetta hafi tafið okkur þó nokkuð þá hefði þetta getað verið mun verra.
Hér gefur að líta svæðið sem varð hvað verst úti í brunanum. Um er að ræða útiskemmu og svo hluta þaksins yfir eldhúsinu. Mestar eru skemmdirnar þó fyrir ofan milliloftið þannig að hægt verður að ganga frá eldhúsinu eins og ekkert hafi í skorist.
Og meira af skemmdum...
Arthúr er að vinna við þakið á útiveitingarýminu og það er engin smá vinna sem liggur þar að baki enda stærðarinnar þak og hvert einasta pálmalauf bundið niður í höndunum.
Það er því góður andinn hérna og lítið sofið milli þess sem unnið er hörðum höndum á öllum vígstöðvum.
Byrjað er að bóka brúðkaup og veislur allt fram til 2009 og því ljóst að þetta verður staður staðanna!!!
Turninn orðinn hvítur að innan og þá fyrst gerir maður sér grein fyrir lofthæðinni og hvað húsnæðið er glæsilegt!!!
Allt að verða tilbúið fyrir málningu...
Völli og Halli fóru út í skóg og náðu sér í trjádrumba sem þeir söguðu niður út í skógi. Þeir verða málaðir hvítir og notaðir sem borðfætur á útiborðunum. Fyrir þá sem halda að við séum endanlega gengin af göflunum þá vísa ég hérmeð í öll heitustu hönnunartímaritin og bendi á að þetta þykir það alflottasta. Ekki spilla Panton stólarnir heldur fyrir þannig að niðurstaðan verða stórkostleg smartheit!
1 comment:
snilld...verst með brunann samt, en gengur greinilega allt vel.
Post a Comment